Jólasveinadagatal með íslensku jólasveinunum. Upplýsingar um nöfn, komutíma og einkenni fyrir alla jólasveinana. Að auki eru fróðleiksmolar um Grýlu, Leppalúða og Jólaköttin. Forritið minnir á hvaða jólasveinn kemur næst til byggða. Áminningin kemu daginn áður en jólasveinninn kemur og því engin hætta á að ruglast á röðinni. Einnig er í forritinu skemmtilegur þrautaleikur sem hægt er að spila til að stytta sér stundir og komast í jólaskap. Hægt er að senda upplýsingar/áminningu á Facebook um hvaða jólasveinn er næstur í röðinni svo vinir og kunningjar gleymi nú ekki því sem skiptir máli. Myndskreytt með skemmtilegum myndum eftir Guðnýju Þorsteinsdóttur.