Sögusteinninn leikjabók

Sögusteinninn leikjabók

By Gebo Kano ehf.

  • Category: Education
  • Release Date: 2019-08-23
  • Current Version: 1.0
  • Adult Rating: 4+
  • File Size: 177.95 MB
  • Developer: Gebo Kano ehf.
  • Compatibility: Requires iOS 12.1 or later.
Score: 5
5
From 1 Ratings

Description

Sögusteinninn er frábær viðbót á íslenskum bóka- og smáforritamarkaði. Um er að ræða spennandi, fróðlega og gagnvirka leikjabók og hljóðbók fyrir krakka á aldrinum 6-10 ára. Lekjabókin var styrkt af eftirtöldum aðilum: • Menningarstyrkur tengdur nafni Jóhannesar Nordal • Þróunarsjóður námsgagna Leikjabókin skiptist í 11 myndskreytta kafla sem í senn er hægt að lesa og hlusta á. Í hverjum kafla er leikjaþraut tengd sögunni sem gerir lesanda kleift að vera þátttakandi í söguþræðinum. Auk þess að vera kjörið lesefni fyrir börn veitir leikjabókin innsýn í íslenskan þjóðmenningararf. Sagan fjallar um krakkana Helenu og Unnar sem búa yfir yfirnáttúrulegum hæfileikum. Þegar álfurinn Gjúki þarfnast aðstoðar þeirra dragast þau inn í Hulduheim og lenda í æsispennandi ævintýrum. Vættirnar í Hulduheimi lifa eins og Íslendingar gerðu fyrr á öldum. Í gegnum söguna kynnist lesandi því bæði þjóðsagnaarfinum og lifnaðarháttum Íslendinga áður fyrr Sögusteinninn er hörkupspennandi og skemmtileg saga sem má lesa sér til afþreyingar en hún nýtist einnig í skólastarfi fyrir nemendur í 3. – 5. bekk. Efni bókarinnar tengist eftirfarandi hæfniviðmiðum úr aðalnámskrá Grunnskóla. Að nemendur geti: Íslenska • nýtt sér og endursagt efni á rafrænu formi, • valið sér lesefni eftir áhuga og þörf og lesið sögur, ljóð og fræðandi efni, sem hæfir lestrargetu, sér til ánægju og skilnings, • lesið ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum, • aflað sér upplýsinga úr ýmsum tiltækum gagnabrunnum, svo sem bókum og á rafrænu formi, • valið bók eða annað lesefni og lesið sér til ánægju. Samfélagsfræði • bent á tengsl valinna þátta í samfélagi, náttúru, trú og lífsviðhorfi, einkum í nærsamfélaginu, • nefnt dæmi um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu, sögu og menningar, • sagt frá einkennum og sögu heimabyggðar og tengslum við önnur svæði á Íslandi, • aflað sér og nýtt vitneskju um samfélagsmálefni í námsgögnum og miðlum. • rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi, • bent á dæmi um áhrif tækni og framkvæmda á mannlíf og umhverfi, • komið auga á nokkra þætti sem hafa haft áhrif á mannlífið í tímans rás, svo sem umhverfi og skipulag samfélaga, • sagt frá gerð og mótun íslensks samfélags fyrr og nú, • bent á dæmi um hvernig sagan birtist í munum og minningum, Upplýsingatækni • nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni, Textílmennt • sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt, Heimilisfræði • tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald, helstu hátíðir Íslendinga, siði sem þeim fylgja og þjóðlegan mat. Í kennsluleiðbeiningum er að finna hugmyndir að umræðuefni og verkefnahugmyndir til að nota með efni bókarinnar. Þau verkefni tengjast mörg fleiri hæfniviðmiðum sem eru talin upp í kennsluleiðbeiningunum. Kennsluleiðbeiningarnar er að finna á eftirfarandi slóð: http://gebokano.com/Sogusteinninn/TilKennara.pdf

Screenshots

keyboard_arrow_up